Á fjórða tug í haldi fyrir þjófnað á 10 þúsund fornminjum

Lögregla á Ítalíu hefur handtekið 34 manns og gert upptæka um það bil tíu þúsund þjófstolna fornmuni, þar á meðal sjö þúsund myntir gefnar út af fornum grískum borgríkjum. Þeim var stolið þaðan sem fornleifarannsóknir standa yfir á Sikiley og í Kalabría-héraði syðst á Ítalíu. Auk þess hefur lögregla fundið hundruð leirvasa, bronshringi, brjóstnálar og örvarodda. Einhverju af myntinni var smyglað til Þýskalands þar sem stóð til að selja hana, samkvæmt upplýsingum yfirvalda. Grafarrán og gripdeildir viðvarandi vandamál Grafarrán og gripdeildir við fornleifarannsóknir hafa verið vandamál á Ítalíu um hundruð ára. Sérdeild lögreglunnar rannsakar slíka glæpi og hefur náð talsverðum árangri á liðnum árum. Deildin uppgötvaði einnig verkstæði þar sem eftirlíkingar fornra mynta og leirmunir eru framleiddir. Alls eru ellefu í varðhaldi á Sikiley og í Kalabríu vegna rannsóknar málsins og 23 í stofufangelsi. Fólkið hefur verið ákært fyrir samsæri, þjófnað á menningarverðmætum, kúgun og fölsun auk fleiri brota. Á Sikiley og í Kalabríu er fjöldi svæða sem geyma sögulegar minjar. Einn þeirra þekktustu er Dalur hofanna á Sikiley þar sem sjá má rústir sjö grískra hofa.