Handtekinn fyrir líkamsárás og hótanir á öldurhúsi í miðborginni

Maður var handtekinn fyrir að hafa upp hótanir og beita líkamlegu ofbeldi á öldurhúsi í miðborginni.RÚV / Ragnar Visage Maður var handtekinn á öldurhúsi í miðborg Reykjavíkur fyrir líkamsárás og hótanir. Þetta kemur fram í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem greinir einnig frá handtöku manns sem var til vandræða í fjölbýlishúsi miðsvæðis í borginni. Hann vildi ekki sanna deili á sér fyrr en hann var kominn á lögreglustöðina. Tveir voru handteknir fyrir að hreiðra um sig og kveikja eld í ruslageymslu húss á svipuðum slóðum. Maður neitaði að borga fyrir drykk á veitingahúsi í miðborginni og lögregla sinnti veisluhávaða í Hafnarfirði.