Hjalti Þór Vilhjálmsson, settur þjálfari Álftaness, segir leikmenn hálf skammast sín eftir þungt tap gegn Tindastól á dögunum og afsögn Kjartans Atla Kjartanssonar úr starfi þjálfara liðsins. Kjartan bað Hjalta um að taka við af sér fljótlega eftir tapið gegn Stólunum á föstudag. Álftanes heimsækir nágranna sína í Stjörnunni í kvöld í bikarnum.