EBU, samband evrópskra sjónvarpsstöðva, staðfesti í dag að þjóðirnar sem taka þátt í Eurovision á næsta ári verða 35 talsins. Keppnin fer fram dagana 12. til 16. maí. Miklar deilur risu um framkvæmd keppninnar vegna þátttöku Ísraels og andstöðu nokkurra aðildarstöðva við því. Ísland er eitt fimm landa sem taka ekki þátt í keppninni í ár ásamt Spáni, Írlandi, Hollandi og Slóveníu. Þrjú ríki snúa aftur til keppni. Það eru Búlgaría, sem ekki hefur verið með í þrjú ár, Rúmenía sem hefur verið fjarri í tvö ár og Moldóva sem tók ekki þátt í ár. Reglum keppninnar var breytt en ekki voru greidd atkvæði um hvort Ísrael fengi að taka þátt eða ekki.