Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á 17 skotvopn og töluvert magn skotfæra í eftirliti með skotvopnaeigendum um helgina. Þrír leyfishafar verða kærðir fyrir brot á skotvopnalögum. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að það sé hluti af samfélagslöggæslu að auka eftirlit með eigendum skotvopna. Þar sé meðal annars gengið úr skugga um að skotvopn séu geymd í viðurkenndum skotvopnaskáp, og að skotfæri séu ekki geymd með skotvopnum heldur læst í sér skáp eða í læstu hólfi í skotvopnaskáp. Þá skuli skotvopnaeigendur alltaf að geta framvísað þeim vopnum sem þeir eru skráðir fyrir, eða framvísað lánsheimild séu þau ekki í þeirra vörslum. „Lögregla reynir í þessu sem öðru að viðhafa meðalhóf og leiðbeina fólki fremur en grípa til aðgerða við minnsta tilefni. Á þessu eru þó auðvitað ákveðin takmörk og í sumum tilfellum er staðan sú að ekki verður við unað og grípa verður til aðgerða,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. „Þannig voru samtals 17 skotvopn og töluvert magn skotfæra haldlagt við eftirlit sem fram fór um helgina, en í þeim tilfellum voru vörslur með slíkum hætti að óforsvaranlegt varð að teljast. Viðkomandi leyfishafar munu í framhaldinu verða kærðir fyrir brot á vopnalögum.“