Snjóflóðaeftirlit í Súðavík, og víða um land, var ekki í fullnægjandi horfi og ekki samkvæmt áherslum yfirvalda. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um snjóflóðið í Súðavík í janúar 1995. Fjórtán fórust í flóðinu, þar af átta börn. Skýrslan var unnin af rannsóknarnefnd sem Alþingi skipaði í nóvember í fyrra. Hópur aðstandenda og ástvina þeirra sem fórust í flóðinu hafði knúið á um rannsókn. Umfjöllun Heimildarinnar fyrir tveimur árum kom hreyfingu á málið.