Franskur dómstóll hefur úrskurðað að PSG þurfi að greiða Kylian Mbappe, fyrrum leikmanni félagsins, rúma 9 milljarða króna í valgoldin laun og bónusa. Mbappe yfirgaf PSG sumarið 2024 og gekk til liðs við Real Madrid á frjálsri sölu. Mbappe hafði átt í deilum við PSG síðustu tvö ár samningsins og krafðist 40 milljarða frá félaginu. PSG svaraði með kröfu á Mbappe upp á 36 milljarða vegna sölu sem aldrei varð. Dómstóllinn blés á þessar svimandi kröfur beggja. Niðurstaðan er að PSG skuldi Mbappe laun fyrir apríl og júní 2024 auk bónusa. Samtals 9 milljarða, tæplega fjórðungs kröfunnar. PSG getur áfrýjað en Mbappe ætlar að una dóminum. Kylian Mbappe er nú 9 milljörðum ríkariEPA-EFE/Piotr Nowak