Sagðist í yfir­lýsingu aldrei hafa ætlað að skaða for­eldra sína

Margrét Halla Löf las upp yfirlýsingu fyrir dómi þar sem hún mótmælti lýsingu ákæruvaldsins og lýsti sig saklausa. Hún viðurkenndi erfið og stundum líkamleg átök í samskiptum við foreldra sína, en sagði aldrei hafa verið um barsmíðar, vopn eða ásetning til að skaða að ræða og lagði áherslu á að umhyggja hefði alltaf verið til staðar þrátt fyrir ágreining.