Ákærður fyrir að undirbúa hryðjuverkaárás á jólamarkað í Póllandi

Nítján ára gamall pólskur háskólanemi hefur verið handtekinn grunaður um undirbúning sprengjuárásar á jólamarkað í borg í Póllandi. Yfirvöld í landinu greindu frá málinu í dag. Sakborningurinn, Mateusz W., er pólskur ríkisborgari og fyrsta árs laganemi við Kaþólska háskólann í Lublin sem er í austurhluta Póllands. Hann hreifst af íslamskri hugmyndafræði og hryðjuverkum, segir Jacek Dobrzynski sem er talsmaður samhæfingarstöðvar pólskra leyniþjónustustofnana. Saksóknarar segja að komið hafi verið í veg fyrir áform háskólanemans þegar þau voru enn á frumstigi. Maðurinn hafi þó verið kominn í samband við fulltrúa hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki. Mateusz hefur verið ákærður fyrir að undirbúa hryðjuverkaárás sem hefði geta valdið dauða eða alvarlegum áverkum fjölda fólks, segir í tilkynningu frá skrifstofu ríkissaksóknara Póllands. Hann hefur verið úrskurðaður í þrjátíu daga gæsluvarðhald en farið verður fram á lífstíðarfangelsi yfir honum.