Rafmagnsleysi varð 20 þúsund fiskum að aldurtila

20 þúsund fiskar drápust þegar rafmagnslaust varð í fiskeldi í Tálknafirði. Lögreglan á Vestfjörðum greinir frá þessu í vikuskýrslu á Facebook-síðu sinni í dag. Lögreglunni á Patreksfirði var tilkynnt um fiskadauðann á föstudag. Rafmagnslaust varð á Patreksfirði og allri byggð þar í kring á fimmtudag þegar Tálknafjarðarlína 1, milli Kaldeyrar og Mjólkár, leysti út. Frá Patreksfirði í sumar.RÚV / Bergsteinn Sigurðsson