Morðinginn á Bondi-strönd ákærður

Blómahaf við Bondi-strönd þar sem hinna látnu er minnst.EPA / FLAVIO BRANCALEONE Naveed Akram, annar þeirra sem myrtu 15 manns í skotárás á Bondi-strönd í Ástralíu á sunnudag hefur verið ákærður fyrir morðin, hryðjuverk og að koma sprengju fyrir sem átti að valda skaða. Lögreglan í Nýja Suður-Wales segir að Akram hafi ætlað að drepa, valda alvarlegum skaða og hætta líki fólks í þágu trúarlegs málstaðar og til að skapa ótta í samfélaginu. Faðir Naveed, Sajid, tók einnig þátt í árásinni en var skotinn til bana af lögreglu. Lögreglan segist rannsóknina meðal annars beinast að því hvort feðgarnir hafi hitt öfgasinnaða Íslamista í heimsókn til Filippseyja nokkrum vikum fyrir árásina.