Forseti Alþingis hefur ákveðið í samráði við forsætisnefnd að starfsáætlun þingsins verði felld úr gildi frá og með deginum í dag og hefur formönnum þingflokka einnig verið tilkynnt um það. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Alþingis. Samkvæmt upphaflegri starfsáætlun áttu þingstörfum að ljúka í dag en ljóst er miðað við gang mála að fundað verði fram eftir vikunni. Þegar starfsáætlun þingsins er tekin úr sambandi hefur þingforseti heimild til að fjölga þingfundardögum og lengt þingfundi eins og hann telur þörf á. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti AlþingisRÚV / Ragnar Visage