Hjálmar hættir í borgarstjórn

Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, ætlar ekki að gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Hjálmar var fyrst kosinn í borgarstjórn 2010 og er því að klára fjórða kjörtímabil sitt. „Við höfum sett fram skýra stefnu um framtíð Reykjavíkur, að hún breytist smám saman úr dreifðri bílaborg í þétta, vistvæna og mannvæna borg,“ skrifar Hjálmar í tilkynningu um ákvörðun sína. „Við höfum líka lagt mikla áherslu á samvinnu borgarinnar við óhagnaðardrifin húsnæðisfélög. Þessi stefna hefur orðið til þess, að mínu mati, að Samfylkingin hefur verið leiðandi flokkur í borgarstjórn síðustu 16 árin.“ Hjálmar hefur setið í borgarráði fyrir Samfylkinguna en gekk úr því til að hliðra fyrir borgarfulltrúanum Dóru Björt Guðjónsdóttur sem skipti í gær úr Pírötum yfir í Samfylkinguna. Sabine Leskopf, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, tilkynnti í síðustu viku að hún hygðist ekki bjóða sig fram aftur.