Í ár eru 25 ár frá því sælgætisframleiðandinn Galleros Artesanos, sem einkum er þekktur fyrir gæðakonfekt, bjó fyrst til sögusvið fæðingar Jesú Krists fyrir jólin úr súkkulaði. Í tilefni þessa hefur verið lagt sérstaklega mikið í verkið í ár. Um 1.800 kíló af súkkulaði eru notuð í verkið, og það er jafnframt litríkara en áður. Verkið, sem er sýnt í húsakynnum framleiðandans í Cordoba, laðar jafnan að fjölda ferðamanna. Vinna hófst við verkið skömmu eftir páska. því var að mestu lokið í byrjun september þegar uppsetning á sýningarrýminu hófst. Verkið verður til sín til 6. janúar. Þá er skólabörnum boðið í heimsókn þar sem þau fá að smakka á verkinu.