Batinn gengur framar vonum og Þorsteinn Leó er bjartsýnn fyrir EM

Handboltamaðurinn Þorsteinnn Leó Gunnarsson er á batavegi og segist bjartsýnn fyrir komandi Evrópumóti sem hefst 15. janúar. Þorsteinn Leó meiddist í leik með félagsliði sínu, Porto í nóvember. Eftir læknisskoðun kom í ljós rifa í nára og á liðbandi þar í kring. Talið var að batinn gæti tekið allt að tólf vikum en Þorsteinn Leó setti alltaf stefnuna á EM. „Staðan er bara þokkalega góð, endurhæfingin hefur gengið mjög vel og ég er á undan áætlun. Eða eins og planið var þá er ég langt á undan áætlun. Þetta átti að taka 10-12 vikur en það eru bara komnar 4 vikur og ég er byrjaður að hlaupa og æfa án snertingar. Ég stefni á að vera heill fyrir janúar og er bara bjartsýnn á það að verða klár fyrir EM,“ sagði Þorsteinn Leó í samtali við Vísi . Þá segist Þorsteinn hafa lagt allt kapp á batann en segir jafnframt að gott teymi lækna og sjúkraþjálfara styðji mikið við en góð gen gætu líka spilað inn í. Þorsteinn Leó er vinstri skytta í íslenska liðinu og hefur reynst afar vel í þeirri stöðu. Hópurinn tilkynntur á morgun Á morgun verður svo hulunni svipt af leikmannahópnum sem heldur á Evrópumótið. Mótið hefst sem fyrr segir þann 15. janúar og RÚV sýnir frá mótinu. Allir leikir Íslands verða sýndir á RÚV. Fyrsti leikur Íslands á mótinu er 16. janúar þegar liðið mætir Ítalíu.