Volodymyr Zelensky.EPA / Remko de Waal Bandaríkjastjórn þrýstir á Evrópusambandið að samþykkja ekki að nota frystar eignir Rússa til að styðja við Úkraínu. Þetta hefur AFP-fréttastofan eftir ónafngreindum úkraínskum embættismanni. Sá hinn sami sagði jafnframt að Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu yrði í Brussel á morgun, þegar fundur leiðtogaráðsins fer fram, einmitt til að þrýsta á Evrópulönd að taka þessa ákvörðun. Reuters hefur eftir starfsmanni Evrópusambandsins að Zelensky taki þátt í fundinum á morgun.