Sarah Bernhardt fæddist árið 1844 og leiklistarferill hennar hófst þegar hún var 18 ára. Hún var sannkölluð stjarna og vakti aðdáun leikhúsgesta um allan heim í meira en hálfa öld. Í grein um hana í Vikunni 30. mars 1967 segir: Þegar hún talaði var það eins og mjúkt regn, — gullnir dropar; — þessi bjarta vera var svo grannvaxin, að það var næstum ótrúlegt, — var hún kona? — eða var hún draumur? „Hún var sannarlega kona, — kona sem þorði að lifa lífinu eftir eigin geðþótta. En henni var allt fyrirgefið, hún var hin guðdómlega Sarah.“ Orð af orði bakar til jólanna og er að leggja lokahönd á sörurnar, sem þykja víða ómissandi á aðventunni. Þær heita eftir franskri leikkonu sem vakti undrun og aðdáun leikhúsgesta í meira en hálfa öld. Ýmis skrif um Söruh Bernhardt og uppruna sörukökunnar eru rifjuð upp í Orði af orði á Rás 1, auk þess sem skoðaður er munurinn á íslenskum og dönskum sörum.