Meirihluti Alþingis samþykkti síðdegis frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um kílómetragjald á ökutæki. Frá og með 1. janúar mun kílómetragjald ná yfir öll ökutæki greiða kílómetragjald en hingað til hefur það náð yfir rafmagnsbíla tengiltvinnbíla. Á sama tíma falla eldsneytisgjöld niður. Frumvarpið var samþykkt með 34 atkvæðum meirihlutans gegn 18 atkvæðum stjórnarandstöðu. RÚV / Ragnar Visage