Áströlsk yfirvöld vilja fækka skotvopnum sem eru í umferð með því að kaupa þau af almenningi. Þetta er gert í kjölfar mannskæðrar skotárásar á Bondi-strönd í útjaðri Sydney síðustu helgi. Fimmtán voru drepnir við hátíðarhöld í tilefni ljósahátíðar gyðinga og árásin var skilgreind sem hryðjuverk. Annar þeirra var felldur og hinn handtekinn. Áströlsk stjórnvöld tilkynntu degi síðar að til stæði að herða reglur um skotvopn í landinu. Endurkaup hins opinbera ná til umframmagns af skotvopnum auk ólöglegra skotvopna og þeirra sem hafa nýlega verið bönnuð. Síðast réðust áströlsk stjórnvöld í slíkt átak í kjölfar fjöldamorðs í Port Arthur árið 1996 þegar 35 voru drepnir. Því fylgdi einnig hert skotvopnalöggjöf sem varð fyrirmynd slíkra breytinga víðar í heiminum.