Ágúst Elí á leið til KA

Handboltamarkvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson er á leið norður á Akureyri þar sem hann gengur í raðir KA. Þetta kom fram á miðlum KA í kvöld. Ágúst Elí tilkynnti í síðustu viku að hann hefði rift samningi sínum við Ribe-Esbjerg í Álaborg og sagði það vera mikilvægt skref á þeim stað sem hann væri á. Tækifærin voru af skornum skammti hjá danska liðinu og Ágúst sagðist hlakka til að spila á ný. Ágúst Elí í leik með íslenska landsliðinu.EPA Ágúst Elí á að baki 53 leiki fyrir íslenska landsliðið en hefur ekki verið í hópi að undanförnu. KA komst fyrr í kvöld í undanúrslit bikarkeppninnar með sigri á ríkjandi bikarmeisturum Fram. Það er því ekki ólíklegt að þar muni Ágúst Elí koma við sögu.