Bjúgnakrækir kemur til byggða í nótt.RÚV / Trausti Guðmundur Halldórsson Bjúgnakrækir, níundi jólasveinninn sem Jóhannes úr Kötlum orti um, kemur til byggða í nótt. Þegar algengt var að bjúgu og annað kjötmeti væri hengt til reykingar í eldhúsum, var sagt frá því að Bjúgnakrækir hafi verið gjarn á að klifra upp í eldhúsrjáfur og hnupla bjúgum.