Frumvarp um afturköllun alþjóðlegrar verndar á dagskrá strax eftir þinghlé

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir frumvarp um afturköllun alþjóðlegrar verndar fyrir þá sem brjóta alvarlega af sér verða á dagskrá þingsins strax eftir hlé. Málið náði ekki fram að ganga fyrir jólahlé á þingstörfum. „Það hefur fengið góða meðferð í þinginu. Ég heyri ekki betur en að stjórnarandstaðan ætli að styðja þetta mál líka. Stóra málið er að þetta mál er í góðum farvegi og verður að lögum mjög fljótlega,“ segir Þorbjörg. Fjallað hefur verið um það í fjölmiðlum að Viðreisn hafi sótt það hart að koma málinu á dagskrá eftir að samningar náðust um þinglok. „Það eru auðvitað alltaf átök um það hvaða mál þetta eru og byggir á samkomulagi við stjórnarandstöðu. Ég heyri að flestir flokkar stjórnarandstöðunni voru reiðubúnir til þess að klára þetta mál en þetta náðist ekki í þetta sinn,“ segir Þorbjörg. „Ég er staðráðin í því að fylgja þessu máli fast eftir. Það verður gert. Útlendingamál verða á dagskrá strax í janúar,“ segir Þorbjörg.