Eva Björk Davíðsdóttir átti stórleik.Mummi Lú Stjarnan vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í efstu deild kvenna í handbolta er liðið lagði Fram, 34-31. Stjarnan hafði gert eitt jafntefli og tapað níu leikjum fram að deginum í dag. Liðið er þó enn í neðsta sæti með þrjú stig, einu minna en Selfoss. Eva Björk Davíðsdóttir átti stórleik en hún skoraði 13 mörk og lagði upp átta fyrir Stjörnuna. Þá var Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir með 16 varin skot. Harpa María Friðgeirsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir voru með sex mörk hvor hjá Fram. Staðan í deildinni Valur - 18 stig ÍBV - 18 stig ÍR - 14 stig Fram - 11 stig Haukar - 11 stig KA/Þór - 9 stig Selfoss - 4 stig Stjarnan -3 stig