„Vangreiðslugjald“ orð ársins hjá Árnastofnun

Árnastofnun hefur valið orðið vangreiðslugjald sem orð ársins. Á vef stofnunarinnar segir að orðið hafi verið áberandi á árinu í tengslum við umræðu um bílastæðamál og var réttmæti gjaldsins umdeilt. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur frá árinu 2018 valið orð ársins á grundvelli gagna sem stofnunin safnar um málnotkun jafnt og þétt allt árið. Við valið er tölfræðilegum aðferðum beitt til að greina þau orð sem áberandi eru í málinu og velja úr orð sem koma til greina. Með hliðsjón af þessum gögnum er orð ársins ákveðið. Orðin sem komu til greina við val á orði ársins 2025 eru: tollastríð, fjölþáttaógnir og fjölþáttaárásir, gímald, kjarnorkuákvæði, skuggafloti og frelsisfloti, ofbeldisvarnir, gervigreindarkapphlaup, virðismat, vók/vókismi og vangreiðslugjald sem varð fyrir valinu. Þótt orðið vangreiðslugjald sé tiltölulega nýtt má finna það í fréttum um bílastæðamál frá árunum 2011 og 2018. Orðið vangreiðsla er þó ekki nýtt en er algengara í lagamáli en almennu máli. Í íslenskri nútímaorðabók er vangreiðsla skýrt sem „of lág greiðsla“. Sem fyrr segir vísar orðið vangreiðslugjald til gjalds sem bílastæðafyrirtæki innheimta þegar ekki er greitt fyrir gjaldskylt bílastæði innan tiltekins tímaramma. Ef greiðsla berst ekki innan tilskilins tíma er rukkun send til skráðs eiganda ökutækisins og vangreiðslugjaldið leggst ofan á stöðugjaldið.