Fólkið sem lenti í alvarlegu bílslysi í Suður-Afríku á miðvikudaginn var statt í landinu til að vitja drengs sem þar sækir fíknimeðferð á meðferðarheimilinu Healing Wings. Föðuramma drengsins og systir létust í slysinu og faðir hans liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Jóhannesarborg. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem talsmaður fjölskyldunnar sendir á fjölmiðla. Þau höfðu ferðast til Suður-Afríku til þess að verja jólunum með drengnum og fara með jólagjafir til drengjanna sem þar dvelja. „Við erum harmi slegin og engin orð fá lýst þeirri sorg sem fjölskyldan gengur nú í gegnum,“ segir í yfirlýsingunni. Frekari upplýsingar verði ekki veittar að svo stöddu. Málið er á borði borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins og ræðismaður Íslands í Suður-Afríku er fjölskyldunni innan handar.