Fimm liðsmenn hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki voru drepnir í loftárásum Bandaríkjanna í Sýrlandi í nótt. Markmiðið var að hefna þriggja Bandaríkjamanna sem voru drepnir í síðustu viku. Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, CENTCOM, segja í tilkynningu að herþotur, þyrlur og fallbyssur hafi verið notaðar í árás á yfir sjötíu skotmörk í Sýrlandi. Einnig voru notaðar flugvélar frá Jórdaníu. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir árásina vera mjög alvarlega hefndaraðgerð og að ráðist sé hart á vígi samtakanna eftir að þrír Bandaríkjamenn, tveir hermenn og túlkur, voru drepnir í skotárás vígamanns í Sýrlandi í síðustu viku. Árásarmaðurinn var drepinn á vettvangi. CENTCOM segir hann hafa verið liðsmann samtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki og lýsir árásinni sem umsátri. Ríkisrekni fjölmiðillinn Petra í Jórdaníu segir í frétt að jórdanski flugherinn hafi tekið þátt í árásunum til að koma í veg fyrir að öfgahópar ógni öryggi nágranna Sýrlands og svæðisins í heild.