Fjórir fluttir með þyrlu eftir bílveltu á Suðurlandi

Fjórir voru fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir bílveltu austan við Kirkjubæjarklaustur, skammt frá Núpsstað, síðdegis. Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, og Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfesta þetta í samtali við fréttastofu. Útkall vegna bílveltunnar barst um klukkan þrjú og þyrlan lenti á Landspítalanum á sjötta tímanum. Þorsteinn segir ekki hægt að segja nákvæmlega til um áverka, en að einn hafi slasast meira en hinir þrír.