Öryggisráðuneyti Ísraels hefur viðurkennt nítján nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum, sem er álitið brot á alþjóðalögum. Alþjóðadómstóllinn í Haag komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að hernám Ísraels á Vesturbakkanum, í Austur-Jerúsalem og á Gazaströndinni væri ólögmætt. Bezalel Smotrich fjármálaráðherra Ísraels sagði ákvörðunina snúast um að koma í veg fyrir stofnun palestínsks ríkis. Antonio Guterres framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur sagt að útþensla Ísraels á landtökubyggðum kyndi undir spennu, takmarki aðgang Palestínumanna að landi og ógni möguleikum Palestínu til fullveldis.