Trump skipar sérstakan sendifulltrúa fyrir Grænland

Jeff Landry í september.AP / Gerald Herbert Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Jeff Landry, ríkisstjóra Louisiana, sérstakan sendifulltrúa sinn í málefnum Grænlands. „Jeff skilur hve nauðsynlegt Grænland er fyrir Þjóðaröryggi okkar og hann mun vinna að framgangi Hagsmuna Landsins okkar fyrir Velferð, Öryggi og Afkomu Bandamanna okkar og raunar Heimsins,“ sagði Trump í tilkynningu um skipunina [hástöfun hans]. Trump hefur ítrekað lýst því yfir að nauðsynlegt sé að Bandaríkin innlimi Grænland og hefur neitað að útiloka beitingu hervalds til að ná þessu fram. Landry sagði skipun sína í þetta embætti ekki hafa áhrif á stöðu hans sem ríkisstjóra Louisiana.