Fulham og Nottingham Forest mættust í síðasta leik 17. umferðarinnar í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í kvöld. Eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu í uppbótartíma þegar Raúl Jiménez steig á punktinn fyrir Fulham og kom boltanum í netið. Lokatölur urðu 1-0. Raúl Jiménez fagnar markinu í kvöld.AP/PA / Adam Davy Fulham er í 13. sæti deildarinnar með 23 stig. Forest er á hættusvæði í 17. sæti með 18 stig, einu sæti frá fallsæti. 18. umferð deildarinnar verður spiluð um næstu helgi.