Þrír alvarlega slasaðir eftir sprengingu í efnaverksmiðju Elkem í Frakklandi

Fjórir slösuðust, þar af þrír alvarlega, eftir sprengingu og eldsvoða í efnaverksmiðju Elkem í Frakklandi í gær. Um 100 slökkviliðsmenn á yfir 30 slökkviliðsbílum voru sendir að verksmiðjunni sem stendur nærri Lyon í suðausturhluta Frakklands. Yfirvöld ráðlögðu fólki í grennd að halda sig fjarri verksmiðjunni og helst innandyra, að því er segir í frétt Reuters . Hraðbraut í nágrenninu var lokað tímabundið og hlé var gert á ferðum lesta og fljótabáta nærri verksmiðjunni sem stendur nærri Rón. Verksmiðjan er sem áður segir í eigu norska fyrirtækisins Elkem. Það framleiðir hinar ýmsu kísilafurðir, einkum fyrir málmsteypuiðnað. Félagið á eina kísilmálmverksmiðju hér á landi, á Grundartanga. Í tilkynningu félagsins segir að ráðist verði í nákvæma rannsókn á tildrögum sprengingarinnar.