Wegovy í töfluformi í Bandaríkjunum í janúar

Þyngdarstjórnunarlyfið Wegovy hefur verið samþykkt í töfluformi af Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna, FDA. Danski lyfjaframleiðandinn Novo Nordisk sem framleiðir lyfið segir þyngdartap jafnmikið og þegar lyfið er tekið inn í sprautuformi. Samkvæmt tilkynningu Novo Nordisk um málið á að taka töfluna inn daglega. Þetta er fyrsta þyngdarstjórnunarlyfið sem samþykkt hefur verið í töfluformi. Þriðjungur þeirra sem tóku þátt í prófunum fyrir lyfið léttust um 20 prósent eða meira og meðalþyngdartap var 16,6 prósent. „Sjúklingar sem taka lyfið hafa val um þægilegan kost, töflu sem það tekur einu sinni á dag, sem getur hjálpað þeim að ná sama þyngdartapi og upprunalega Wegovy-sprautan,“ segir Mike Doustdar, forstjóri Novo Nordisk. Búist er við að lyfið komi á markað í Bandaríkjunum snemma í janúar.