Að minnsta kosti einn Palestínumaður var drepinn og sex særðir í árásum ísraelskra hermanna á Gaza á miðvikudag. Maðurinn var drepinn í Jabalia í norðurhluta Gaza og þrír særðust. Læknaliðar greindu palestínska fréttamiðlinum Wafa frá því að þrír til viðbótar hefðu særst þegar ísraelskir hermenn hleyptu af skotum austan við Khan Younis. Sama dag sökuðu Ísraelar Hamas-samtökin um að rjúfa vopnahléið sem er í gildi með því að sprengja sprengju sem særði einn hermann í Rafah. Sprengingin varð á sama tíma og fulltrúar Hamas funduðu með tyrkneskum embættismönnum í Ankara til að ræða næsta áfanga vopnahlésins. Sprengjan sprakk undir farartæki ísraelskra hermanna sem voru að „taka í sundur“ hernaðarinnviði í borginni Rafah. Mahmoud Mrdawi, embættismaður Hamas-samtakanna, skrifaði á samfélagsmiðlum að sprengingin hefði orðið vegna ósprunginna skotfæra inni á yfirráðasvæði Ísraela og neitaði því að Hamas bæri ábyrgð. Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sakaði Hamas hins vegar um að brjóta gegn vopnahléinu og sagði að Ísrael myndi bregðast við á viðeigandi hátt.