Eftir að hitamet féll á Seyðisfirði í á aðfangadagskvöld, 19,8 stig, og hraustlegan vind víða á landinu, sérstaklega á Norðvesturlandi, er sunnanáttin farin að ganga niður, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Víða 8-15 m/s með morgninum og súld eða rigning með köflum, en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Áfram hlýtt í veðri þó hitatölur nái líklega ekki sömu hæðum og í gærkvöldi. Í kvöld nálgast kuldaskil úr vestri, þá bætir heldur í vind og úrkoman verður samfelldari vestanlands. Þegar skilin ganga yfir í nótt kólnar nokkuð skarpt og það fer að snjóa til fjalla. Vestan og suðvestan 10-18 m/s á morgun og lítilsháttar él, hvassast norðanlands. Í fyrramálið verður skilaúrkoman þó enn viðloðandi austantil á landinu en þar léttir til þegar líður á morguninn. Hiti um eða yfir frostmarki. Síðdegis verður svo þurrt að mestu á landinu og það dregur smám saman úr vindi.