Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði.RUV.IS / Jóhannes Jónsson Foktjón varð þegar veggklæðning af Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði fauk og hafnaði á tveimur mannlausum bifreiðum við Hafnarstræti í nótt. Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar á Vestfjörðum. Þar segir einnig að hlutir hafi fokið á nokkrum stöðum í Skutulsfirði. Þá urðu lögreglumenn varir við að landfestar báts við bryggju á Ísafirði voru að losna og gerðu þeir skipstjóra viðvart. Lögreglan hvetur húseigendur til að huga vel að nærumhverfi sínu og koma í veg fyrir að hlutir fjúki með tilheyrandi hættu. Þá eru vegfarendur hvattir til að gæta sérstakrar varúðar undir bröttum hlíðum þar sem grjót gæti hafa fallið á vegi.