Dregur úr skriðuhættu eftir mikla úrkomu

Dregið hefur úr skriðuhættu á vestanverðu landinu, en mikil úrkoma hefur mælst þar síðustu tvo sólarhringa – yfir 225 millimetrar í Grundarfirði og yfir 100 millimetrar í Ólafsvík, samkvæmt upplýsingum frá ofanflóðavakt Veðurstofunnar. Áfram er búist við úrkomu á vestanverðu landinu, einna helst á Snæfellsnesi. Víða hafa orðið vatnavextir, en án teljandi vandræða. Þrátt fyrir að draga taki úr hættu er ekki hægt að útiloka grjóthrun og skriður næsta sólarhringinn og er því viðvörun í gildi til morguns. Mikil úrkoma hefur mælst á Grundarfirði.Jóhannes Jónsson