Ísraelsher tilkynnti í morgun um fjölda loftárása á vopnageymslur, æfingasvæði og önnur mannvirki Hezbollah-samtakanna. Í yfirlýsingu frá hernum segir að loftárásir hafi verið gerðar á fjölda skotmarka sem samtökin hafi notað til að undirbúa hryðjuverkaárásir gegn Ísrael. Ríkisfréttastofa Líbanon, NNA, segir fjölda loftárása ísraleskra flugvéla hafa orðið í fjalllendi í suður- og austurhluta landsins. Þrátt fyrir að vopnahlé hafi verið samþykkt í nóvember í fyrra hefur Ísraelsher haldið loftárásum áfram. Samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Líbanons hafa rúmlega 340 manns verið drepin af Ísraelsher síðan vopnahléið tók gildi.