Umfangsmikil eldflaugaárás sögð vofa yfir Kyiv

Nokkrar kröftugar sprengingar hafa skekið úkraínsku höfuðborgina Kyiv í kvöld. Borgaryfirvöld segja eldflaugaárás Rússlandshers yfirvofandi. Unnið að viðgerðum á íbúðahúsi í Kyiv eftir drónaárás á Þorláksmessu.AP / Efrem Lukatsky Borgarstjórinn Vitali Klitschko segir í færslu á Telegram að loftvarnarkerfi borgarinnar séu virk og hvetur borgarbúa til að halda sig í skjóli. Flugher Úkraínu segir loftvarnir reiðubúnar árás um allt landið.