Engin reyndist í hættu við Rauðavatn

Vegfarendur við Rauðavatn sáu sumir mikið viðbragð slökkviliðs og lögreglu þar fyrir skemmstu. Ásgeir Valur Flosason, aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir að tilkynning hafi borist um för nálægt vatninu sem stefndu í átt að því. Tilkynnandi hafi talið að mögulega hefði einhver ætlað að ganga í vatnið. Ásgeir Valur segir að sem betur fer hafi það ekki verið raunin heldur hafi kajak-ræðari verið þar á ferð. Við Rauðavatn, myndin er úr safni.Aðsend mynd / Magnús Weber