Um 40 smáskjálftar við Kleifarvatn

Um 40 smáskjálftar hafa mælst við Kleifarvatn frá því að skjálfti af stærðinni 3,1 reið þar yfir skömmu fyrir klukkan tvö í nótt. Veðurstofunni hafa borist tilkynningar um að skjálftinn í nótt hafi fundist í byggð. Flestir eftirskjálftarnir voru strax í kjölfarið, en að sögn Jarþrúðar Óskar Jóhannesdóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands, eru enn að greinast smáskjálftar. Ekki eru merki um gosóróa á svæðinu, sem er þekkt jarðskjálftasvæði. Kleifarvatn. Mynd úr safni.RÚV / Dagný Hulda Erlendsdóttir