Lögreglukonur á næturvakt í Reykjavík. Mynd úr safni.RÚV Lögreglan hefur til rannsóknar líkamsárás sem gerð var í miðborg Reykjavíkur. Einnig rannsaka lögreglumenn þjófnað miðsvæðis í borginni. Þetta kemur fram í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglumenn þurftu einnig að vísa óvelkomnum manni brott af hóteli í miðborginni, sem hlýddi því, og hafa afskipti af þremur sem brutu gegn lögreglusamþykkt. Að öðru leyti virðast lögreglumenn einkum hafa aðstoðað borgarana og sinnt umferðinni ásamt almennu eftirliti í gærkvöld og nótt. Sex gistu fangageymslur klukkan fimm í morgun.