Þrír eru látnir eftir óveðrið Jóhannes í Svíþjóð. Karlmaður á fimmtugsaldri varð undir tré rétt utan við Sandviken, norður af Stokkhólmi í gær. Annar maður lést eftir að hann festist undir tré í bænum Härnösand við austurströnd Svíþjóðar. Og í morgun lést maður á sextugsaldri í Hofors. Hann var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa orðið undir tré. Lögreglan segir manninn hafa verið að vinna í skóglendi þegar tréð féll á hann. Tugþúsundir eru án rafmagns í Svíþjóð eftir óveðrið og á mörgum stöðum hafa tré fallið á vegi og lokað þeim. Þó að appelsínugulri viðvörun hafi verið aflétt eru enn í gildi gular viðvaranir vegna hvassviðris og snjókomu í fjalllendi í Norður- og Vesturbotni.