Óvinsælasta hugmynd ársins

Lögun rauðra umferðarljósa á Akureyri er bæjarbúum mikið hjartans mál. Eftir tæpa tvo áratugi í umferð óskaði Vegagerðin eftir því í sumar að bærinn fjarlægi hjartalaga ljósin. Hjartalaga rauð umferðarljós eru fyrir margt löngu orðin hálfgert einkenni Akureyrarbæjar og íbúar því margir hverjir afar ósáttir við þau áform Vegagerðarinnar að láta taka þau niður af öryggisástæðum. Við rifjum upp frétt okkar um málið frá því í sumar, enda ljóst að hugmyndin var ein sú óvinsælasta sem kom fram á árinu sem er að líða.