Flugeldasala Landsbjargar hafin - stærsta fjáröflunarleið björgunarsveitanna

Flugeldasala Slysavarnarfélagsins Landsbjargar hófst í dag víðs vegar um land og eru útsölustaðir um 100 talsins. Sala á flugeldum hefur verið ein mikilvægasta fjáröflun björgunarsveitanna í áraraðir og stendur undir allt að 80 prósentum af rekstrarkostnaði sveitanna. Auk flugelda bjóða björgunarsveitirnar upp á svokallað rótarskot til fjáröflunar. Flugeldasala er leyfð frá 28. desember til 6. janúar og almenn notkun flugelda er leyfð innan sömu tímamarka. Þó er bannað að sprengja frá tíu á kvöldin til tíu á morgnana að undanskilinni nýársnótt.