Loðnuleit hefst strax eftir áramót

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson fer í loðnuleit í á fyrstu dögum ársins. Guðmundur J. Óskarsson sviðsstjóri uppsjávar hjá Hafrannsóknarstofnun segir að þá sé miðað við að fá upplýsingar um útbreiðslu loðnunnar og hve austarlega hún haldi sig. Guðmundur býst við að heildarmæling loðnunnar hefjist upp úr miðjum mánuði. Þá taka þátt rannsóknarskipin Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir, auk veiðiskipanna Polar Ammassak, Barða og Heimaeyjar. Gert er ráð fyrir að það þurfi að leita og mæla á ný í byrjun febrúar eins og undanfarin ár. Loðna er kald-og uppsjávarfiskur sem hefur vetrarstöðvar norður af landinu en nálgast land í ársbyrjun þegar líður að hrygningu. Fyrstu göngur koma upp að suðausturströndinni í janúar-febrúar og jafnvel fyrr segir á heimasíðu Hafró og hafa þá fyrstu torfurnar verið á ferðalagi frá vetrarstöðvum sínum frá því í desember.