Bilun í brunaboða Edition-hótelsins — engin hætta á ferðum

Edition-hótelið við Austurbakka.RÚV / Ragnar Visage Brunavarnarkerfi Edition-hótelsins við Austurbakka fór í gang laust fyrir klukkan eitt í nótt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi einn dælubíl að hótelinu að sögn varðstjóra. Á daginn kom að bilun varð í kerfinu sem var endurræst, engin hætta hafi því verið á ferðum. Á samfélagsmiðlum má sjá myndskeið af hópi fólks standa utan við hótelið og óm frá brunavarnarkerfinu berast út í næturkyrrðina.