Minnst 13 fórust þegar lest fór út af sporinu

Að minnsta kosti þrettán fórust og 98 slösuðust þegar lest með 250 manns um borð fór út af sporinu í Oaxaca-ríki í suðurhluta Mexíkó í gær. Björgunarsveitir bera slasaðan farþega brott frá lestinni.EPA / Luis Villalobos Mexíkóski sjóherinn, sem starfrækir járnbrautarlínuna, greindi frá þessu. Forsetinn Claudia Sheinbaum kveðst hafa skipað ráðherra sem fer með málefni sjóhersins auk fleiri háttsettra embættismanna. að fara til Oaxaca til að liðsinna þeim fjölskyldum sem eigi um sárt að binda. Skrifstofa ríkissaksóknara segir rannsókn þegar hafna á tildrögum slyssins. Lestin fer milli Mexíkóflóa og Kyrrahafsins, með farþega og ýmsan farm og þótti mikil samgöngubót þegar hún hóf ferðir 2023.