Þrír erlendir ferðamenn með alvarlega áverka eftir bílslys

Þrír erlendir ferðamenn eru á sjúkrahúsi með alvarleg meiðsl eftir bílslys sem varð nærri Fagurhólsmýri á Suðurlandi í gær. Einn hefur verið útskrifaður. Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við fréttastofu. Allir sem lentu í slysinu eru erlendir ferðamenn. Lögreglan tilgreinir ekki frekar af hvaða þjóðerni eða af hvaða kynjum fólkið er. Tvær þyrlur landhelgisgæslunnar voru kallaðar út á sjötta tímanum í gær vegna slyssins. Tveir bílar sem óku úr gagnstæðri átt skullu saman, fólksbíll og jepplingur. Einar segir tildrög slyssins til rannsóknar.