Reyndar verður að koma fram að HM í atskák var fyrst haldið árið 1988 og svo ekki aftur fyrr en 2001 og 2003 en hefur verið árlegur viðburður frá árinu 2012. Frá þeim tíma hefur Magnus Carlsen sex sinnum orðið heimsmeistari, síðast í gær í Doha í Katar. Næst oftast hefur Indverjinn Viswa-nathan Anand unnið titilinn eða tvisvar og menn á borð við Anatoly Karpov og Gary Kasparov eiga einn titil hvorn. Vignir Vatnar Stefánsson keppti á mótinu í ár. Hann náði sér ekki á strik í atskákinni að því er segir á vefnum skak.is, en Vignir fær annað tækifæri í dag þar sem heimsmeistaramótið í hraðskák verður leikið, sömuleiðis í Katar. Þar verður Magnus Carlsen einnig að teljast líklegastur til afreka en hann er áttfaldur heimsmeistari í hraðskák og vann meðal annars í fyrra þegar hann þó deildi titlinum með Ian Nepomniachi frá Rússlandi. Það var í fyrsta sinn sem það gerist að tveir deila titlinum. Margir þekktir skákmenn í gegnum tíðina hafa orðið heimsmeistarar í hraðskák og nægir þar að nefna Bobby Fischer og Mikhail Tal.