Engin ráðherrauppstokkun á döfinni hjá Flokki fólksins

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins, segir ekki standa til að stokka upp í ráðherrastólum flokksins á ríkisráðsfundi á morgun. Hún fer sjálf með málefni allra þriggja ráðuneyta Flokks fólksins á meðan Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra er í fæðingarorlofi. Eyjólfur hafði farið með málefni mennta- og barnamálaráðuneytisins í fjarveru Guðmundar Inga Kristinssonar, sem er í veikindaleyfi. Inga kveðst vel í stakk búin til að sinna þremur ráðuneytum til styttri tíma yfir hátíðarnar. „Ég mundi telja að akkúrat þessi tími sé nú heppilegur þegar maður er formsins vegna að taka á sig svona embættismannatitla eins og það að vera ráðherra í þremur ráðuneytum, að það skuli detta hér inn í jólin,“ segir Inga „Hér eru sex stuðningsmenn eða aðstoðarmenn sem eru til staðar og gott fólk sem þekkir vel til allra verka í ráðuneytunum og ég held að ég sé alveg í stakk búinn til að geta fylgt því eftir.“ Eyjólfur á von á barni í upphafi næsta árs og Inga segir von á honum til baka um miðjan janúar. Guðmundur Ingi gekkst undir hjartaaðgerð á dögunum og það liggur ekki fyrir hvort eða hvenær hann snýr til baka. „Guðmundur Ingi var að koma úr hjartaaðgerð og hann á bara að njóta vafans hvað það varðar og fá bara að meta það sjálfur hversu langan tíma tekur hans endurhæfing í kjölfarið,“ segir Inga. Þannig að þú gerir ráð fyrir því að öllu óbreyttu að Guðmundur Ingi, snúi til baka sem barnamálaráðherra? „Guðmundur Ingi, eins og ég sagði, hann var að koma úr aðgerð og við skulum bara lofa honum að taka ákvörðun um það.“